Skip to product information
1 of 2

Valley County Soaps

Skyrsápa - Píputóbak og krydd

Skyrsápa - Píputóbak og krydd

Regular price 3.200 ISK
Regular price Sale price 3.200 ISK
Útsala Uppseld

Til á lager

Magn
Þyngd

Þetta er karlmannalegur og karakterfastur ilmur sem hentar þeim sem vilja blöndu af kryddi, reyk og hlýju. Þessi ilmur vekur upp nostalgíu enda eru píputóbakstónar áberandi í honum.

Ilmtónar eru píputóbak, hey, engifer, kanill, romm, birki og sandalviður.

Allar skyrsápurnar okkar innihalda sveitaskyr frá Rjómabúinu Erpsstöðum. Skyrsápurnar henta sérstaklega vel viðkvæmri húð.

Með sápunni fylgir hefti á ensku sem inniheldur fróðleiksmola um íslenska skyrið og er það myndskreytt með listaverkum frá íslenskum listamanni.

Sápan er handgerð og getur útlit hennar því verið breytilegt.

Allar vörur Gamla Læknahússins eru án þalata og parabena, og eru framleiddar á Íslandi.

Innihaldslýsing

Sólblómaolía, kókósolía, sheasmjör, natríum hýdroxíð†, hrísgrjónahýðisolía, skyr (frá Rjómabúinu Erpsstöðum), olífuolía, laxerolía, parfum, natríum laktat, E-vítamín, kamilluextrakt, gljásteinn, lyfjakol, títandíoxíð, járnoxíð.

†Hvarfast fullkomlega og hverfur við gerð sápunnar.

View full details