Valley County Scents
Bílailmur nr. 10 - Sítrónubörkur og hafþoka
Bílailmur nr. 10 - Sítrónubörkur og hafþoka
Low stock
Couldn't load pickup availability
Bílailmur nr. 10 inniheldur tóna af sítrónuberki, hafþoku, kamfóru, brúðarlaufi og lofnarblómi. Þessi ilmur er ferskur þó hann hafi einnig sjávartóna. Blóm- og kvoðutónarnir jarðbinda ilminn.
Bílailmirnir okkar eru handgerðir úr hágæða ilmolíum sem eru blandaðar í umhverfisvænasta og öruggasta leysiefnið sem völ er á. Leysiefnið sem við notum er unnið úr jurtaríkinu og hafa okkar ilmdreifar 40% lægra kolefnisspor samanborið við hefðbundna ilmdreifa.
Leiðbeiningar: Skrúfaðu trétappann af og fjarlægðu innri plasttappann. Skrúfaðu trétappann aftur á. Hristu glasið varlega í nokkrar sekúndur svo tappinn drekki í sig ilminn. Hengdu glasið upp í bílnum eða þar sem þú vilt hafa hann – og njóttu ilmsins!
Allar vörur Gamla Læknahússins eru án þalata og parabena, og eru framleiddar á Íslandi.
Share
Tags: Vegan
